|
|
28.11.2007 14:33:31 / gussy
Prófin nálgast óðum   það er kvíði hér allt í kringum mig, en ég vona bara það besta. Ég ákvað að skrifa svona update á hvað er að gerast hjá mér núna. Ég er mjög mikið á fundum núna upp í skóla, fundir um hvernig starfsnámið verður og hvað tekur við þegar við erum búin að útskirfast. Fór á Jólahlaðborð um daginn með vinnunni hans Torfa, það var mjög gaman ogmjög góður matur. Jólahlaðborðið í vinnunni minniverður 16 des og ætla ég uðvitað að fara. Ég er svona aðeins byrjuð að pæla i jólagjöfum en er ekki nærrum búin að kaupa allt, þð á líka eftir að skreita allt heima og svona. Ég hélt matarboð um helgina sem gekk æðilsega vel ;D ég eldaði salsa kjúklingarétt ummmm gott. Svo var farið niður í bæ og svona. Torfi og ég ætlum að fara í sumarbústað milli jóla og nýárs, við einfaldalega verðum að komast í burtu. Torfi er að vinna fram á liðalanga nótt liggur við og ég er að undirbúa mig fyrir prófið. Já svo er ég búin að fá að vita hvar ég verð í starfsþjálfun ég er að vinna á taugalæknigadeild og svo fer ég að vinna með langveikum börnum. Severd Crotch er loksins búnir að gera myndband og er myndbandið geðveikt þið getið tekkjað á you tube og á kvikmynd.is ef þið viljið sjá það.
»
13.11.2007 19:42:31 / gussy
2 weeks to go Það er voða skrítð að allir eru að byrja að spá og kaupa jólagjafir, en jú það er betra að losna við jólastessið svona fyrirfram og vera á undan öllum. Eina gjöfin sem ég er svoldið stessuð yfir er gjöfin hennar Auju, veit ekkert hvenar ég á senda hana út ?
Fór á fund með yfirmanni mínum í gær. Mér kveið alveg rosalega mikið fyrir þessum fundi en hann gekk vel. Yfirmaðurinn minn vildi ekki að ég mundi hætta svo ég ákvað að taka færri vaktir í staðin. Svo veit hún að ég er að fara í starfsnám eftir jól og tók hún mjög vel í það sem var bara gott mál.
Frí helgar eru alltaf bestar og átti ég frí síðustu helgi. Ég fór á Tíestö á föstudaginn. Það var fyrir party hjá Jórunni sem heppnaðist ótrúlega vel. Við blönduðum drykkji tókum myndir og flippuðum aðeins og ég kynntist yndislegum stelpum, sem er alltaf vel þegið. Ég kenni ölvun um ástandið sem ég var í já já ég tók eitthvað grátu /drama kast en það var búið fljót. við fórum fekar seint á Tíestö ef mig minnir rétt. Það var alveg troðið þarna inni og í stað þess að ég sé von að sjá stráka slamma fóru strákar bara úr af ofan í staðin og voru líka mjög svo sveittir. Ég beið og beið eftir eina laginu sem ég þekki með þessum DJ love stoned laginu en ég heyrði það aldrei. Ég get svo svarið það að hann spilaði eitt lag allan tíman, eða ég veit það ekki. En mér var alveg sama ég fór til þess að hafa gaman með Jórunni sem ég gerði. Þakka bara fyrir frábært klikkunar kvöld ;D
Laugardagurinn Við byrjuðum hjá Tótu fengum okkur kjúkling og franskar og var það mjög kósý. Ég gaf Tótu Cristina Aguilera ilmvatnið í afmælisgjöf og Torfi bauð henni út að borða. Allavegana svo kom Gunni,Tóti og co í heimsókn. Við chilluðum og ætluðum bara að drekka bjór til heiðurs Auju og hafa rólegt. En eftir að hafa farið fram og til baka hvort við ættum að fara í bæinn eða ekki, var sú ávörðun tekin að fara niður í bæ. Váááá þetta var eitt besta djamm sem ég hef tekið hópurinn splundraðit ekkert upp, eða allavegna ekki í langan tíma um allt kvöldið. Þetta var svona djamm þar sem maður hitta alla niðri í bæ. Frábært kvöld út í enda
Kíkti í bíó á Sunnudaginn á myndinna 30 nights, vá þessi mynd er góð. Þetta er algjör bregðumynd og var ég virkilega hrædd á köflum, ég mæli endreigið með henni. Torfi, Kjarri, Anna, Egill og Gunni fóru líka.
»
03.11.2007 19:43:54 / gussy
Löng bið, löng bið það er alltaf svo erfitt að byrja þessi blogg, maður veit aldrei hvernig maður á að byrja á hlutunum. Ég er að skrifa ritgerð ákvað að taka mér smá pásu og skrifa um eitthvað annað en þetta niðurdrepandi efni sem ég er að skrifa um. Það er mánuður eftir af skólanum ég er samt eiginlega ekki að trúa hvað þetta er allt svo fljótt að líða. Ég gerði the Halloween thing keypti mér búning og what not. Fór með Önnu í ótrúlegu búðinna ég keypti mér skott og horn og Anna keypti sér kattar eyru og skott. Það var ekkert smá gaman í fyrir partyinu hjá Önnu um kvöldið, einhvern hluta vegna urðu 2 fyrir party, eitt hjá Torfa og eitt hjá Önnu. Allavegna við vorum öll í mjög góðu stuði chilla drekka bjór og tala um alælt og ekkert drykkjuleikir voru lika stór partur af partyinu. Við fórum í Halloween dótið um 1 leitið, þegar við komum á staðin sem sagt báðir hóparnir var bara allt búið. Við mættum víst of seint some bullshit dæmi þar á ferð. Já já ég fer á Tíesto dæmið þarna um næstu helgi imeð henni Pink Lady minni. Það verður bara gaman held ég. Fór út að borða í gær á Ruby thuesday með henni mömmu við þurftum reyndar að bíða eftir borði í 40 mínutur þegar það var sagt við okkur 20 mínutur. Svo fórum við í bíó á mynd þar sem George Clooney lék aðalhlutverkið. Myndinn var svona pólitísk í anda, mér fannst hún kjög góð og var George Clooney mjög góður í myndinni ég mæli með þeirri mynd. Ég ætla að taka það rólega held ég í kvöld ég keypti mér kippu af bjór sem verður fínt að drekka á eftir. Ég er svo fegin að vera byrjuð á þessarr ritgerð, ég meina mér finnst alltaf það erfiðast að byrja svooooo þannig er það. Sá mýrina um daginn og fannst mér hún mjög góð, þetta er ein af bestu íslenskum myndum sem ég hef séð. Hafið það sem allra best
»
18.10.2007 14:40:57 / gussy
»
24.09.2007 21:21:58 / gussy
Það er svo yndislegt að slaka hér á heima og hlusta á let it be, hey jude og endalaust að frábærum lögum með Bítlunum. En já da da da átti mjög góða helgi, var bara að vinna, það var reyndar brjálað að gera en tíminn leið mjög hratt sem bætti allt upp. Á föstudaginn fór ég mjög snemma að sofa, ég horfði á 3 þætti á The L world ( man I love that show) fór svo í háttinn um 11, Torfi fór í bæinn og var planið að við myndum hittast á laugardaginn. En þegar klukkan sló 2:00 hringdi Tóta í mig og sagði að það þyrfti að ná í Torfa, þar sem hann var búin að fá nóg af bænum og alltof fullur. En svo hrissti Torfi allt slenið af sér og var ekkert og sáttur að Tóta væri að hringja í mig, En já þá var það bara búið. Ég stein sofnaði aftur, en svo hringdi símin klukkan 5:00 þá var það Oddný í símanum, hún sagði að Torfi væri sofnaður á bekk á móti Olever skemmtistaðnum. Svo ég brunaði af stað, ég samt miskildi Oddnýju eitthvað og heyrðist mér að Torfi hafði dottið og meitt sig ílla. En það var alltí lægi með hann. Hann sat á bekk með Tóta að ræða við Krumma í Mínus. En jamm ég var komin heim um 5:30, ég átti svo erfitt með að sofna aftur. Mætti í vinnu klukkan 10:00 ,þar sátu stelpurnar og fóru eitthvað að þræta að ég væri svo mikil svefnþurkka. Ég ný vöknuð og þreytt, ég sagði við þær ég ætti að mæta 10:00 og klukkan er 10:00. Þá sagði ein að ég átti að mæta 9:30 sem pirraði mig þar sem það stóð á vaktaplaninu ( sem var fyrir framan hana ) að ég átti að mæta 10:00. Hún þrætti bara eitthvað um að það væri miskilingur. Eins og mér er sama, það er bara þeim að kenna um þennan miskiling sem planaði vaktaplanið. Stundum er svo pirradi þessi vinna, alltaf einhver miskilingur og leiðindi. En já eftir vinnu var mér boðið í mat til Torfa. Torfi var með mestu þynnku sem hann hafði fengið, hann leit út fyrir að vera fárlasin í mataboðinu. Hann þambaði treo og fór í bað. Allir vorkenndu honum í matarboðinu, það er að segja þanngað til allir fréttu að þetta væri þynnka en ekki veikindi. Þá var bara hleigið. Eftir matinn kom Tóti í heimsókn með bjór og spiluðum hann og Torfi tölvuleiki og horfðuá family guy, meðan ég fór í bað. Vá þetta var eitt besta bað sem ég hef fengið, ég setti svona baðsprengju og allt froðaði. En eftir baðið ákvöddum við 3 að fara í bíó. Við forum á myndina I now pronounce you Chuck and Larry í laugarásbíó. Það var alveg troðið á myndina. Myndinn var mjög fyndinn en samt mjög klisjukennd á köflum. Tóti tók með sér bjór á myndinna og var búin að drekka kippu áður, svo hann hafði mjög hátt og öskraði út um allan salinn hvað þessi mynd væri ömurleg, þegar eitthvað dramtískt atriði kom, fór hann bara að hlæga. En enginn þorði að segja neitt, við þennan risa METAL gaur. Eftir hlé gat Tóti ekki umborið þessa mynd lengur, hann vildi ekki eyða sínu laugardagskvöldi í þessa mynd, svo hann fór bara. Eftir myndina fór ég og Torfi heim horfðum á friends og sofnuðum. Eftir vinnu á Sunnudaginn fór ég heim að læra. Kláraði 2 verkefni og las einn kafla í Hjúkrun 503 um heimilsofbeldi, sem var mjög athyglisvert, en mér fannst engann veginn þessi kafli ná að tala um heimilsofbeldi í öllu sínu formi em það felur sig í. En já að allt öðru, eins og sumir vita hefur mamma min skrifað barnabók, sem heitir Bína bálreiða. Sú bók fekk mjög góðar undirteknir og góða dóma. Alla vegana mamma hefur skrifað aðra bók sem framhald Bínu bálreiða. Bína fer í leikskóla, sem er æðisleg og ef þið lesið hana ætti sumt ekki að koma ykkur á óvart. Ein persónan er bygð á kærasta mínum (:
»
31.08.2007 18:23:03 / gussy
Mér leiðist, eins og svo oft áður ákveð ég bara þá að blogga til eyða einhverjum tíma. Mér finnst ég samt ég hafa svo rosalega lítið að skrifa um. Any way þetta er mín blogg síða og ef mér langar ekki að tala um neitt þá geri ég það bara hummm. Skólinn sokkar nenni ekki að fara út í það, ég bara get ekki beðið eftir að útskrifast shittt hvað það verður gaman. Mér finnst svo böggandi að vera í hópverkefnum, ég skil ekki afhverju sumir kennara hafa alltaf þessu hundleiðinlegu hópverkefni. Mér finnst alltaf jafn óþægilegt að sita með enhverjum sem ég þekki ekki neitt og rökræða við þessa manneskju, svo endar það alltaf þannig í þessum hópverkefnum að ég þarf að skrifa allt niður eða fara fyrir bekkinn og tala, ég sem skrifa nefilega svo málfræðilega rétt og vel, djöfull hata ég það urrrrrr. Vinnan er spes ég finn að það er miklu minna að gera núna heldur enn í sumar sem er nú ekkert hægt að kvarta yfir. Mérr finnst bara svo mikið baktal í gangi þarna og enginn er að trúa neinum. Ef enhver hringir sig veikan er þeim ekki trúað, bara haldið að manneksjan nenni ekki eða sé bara þunn eða eitthvað. Ef maður hringir sig veikan þá er maður veikur. Það á ekkert að hringja heim til manns 5 sinnum og chekka á manni, eða kalla þetta mánudagsveikina. Mér finnst að fólk á bara halda sínum skoðnum fyrir sig sjálfan en ekki vera að slúðra um allan vinnustaðinn að manneskan sem hringdi sig veika er bara á djamminu eða í ljósum. Ég er komin með nett ógeð af sumu fólkinu þarna og hef ég tekið upp á því að borða ekki í lauga kaffi lengur ég er byrjuð að fara út fyrir og labba að sundlauginni og fá mér eina pulsu hjá pulsuvagninum. Það eina sem truflar mig þar eru geitungarnir sem svamla um mann, en hey ég tek það fram yfir að sita ein á lauga kaffi og borða runstykki með kotasælu eða þessi helvítis skyr-Bust í milljónasta skipti. Ahhhh það er föstudagur og þetta er frí helgin mín ég ætti EKKI að vera að tala um skólan og vinnuna núna, held ég tek það rólega í kvöld ætlaði að fá mér nokkra ískalda Sminoff Ice í kvöld og horfa á einhverja bíómyndir, en hef samt ákveðið að spara það til á morgunn þar sem ég er að fara á fyllirý með henni Tótu minni á morgunn. Ahhh ég elska þegar ég á ekki pening en á samt afganga af víni inn í ísskáp, það þarf svo litið til að gera mig ánægða. Síðasta helgi var frábær fór í 50 afmæli pabba hans Torfa. Guðný var að koma frá kaupmannhöfn og var gott að drekka bjór með henni og Sólrúnu í afmælinu, Auja og Gunni and ofcorse Torfi kallin voru þar. Frítt áfengi Geðveikur matur Góð tónlist Frábær stemming Þetta var nóg til þess að hafa gott kvöld (: Ég tók myndir úr afmælinu sem eru fyrir neðan. Það eru lika myndir komnar frá sumrinu ef þið hafið áhuga á því. Hafið frábæra helgi, ég virkilega meina það.
»
20.08.2007 20:42:53 / gussy
Myndir komnar frá menningar nótt búið að laga ! Menninganótt var síðasta laugardag, sú nótt var kveðjuvöld sumarins fyrir marga þar á meðal mig, síðasta sumarnóttin áður en að skólaöninn byrjar. Kvöldið var alveg mjög skemmtilegt og var gott að hanga bara í bænum og drekka sig blindfullan með bestu vinum sínum og hafa engar áhyggur og bara njóta þess að vera úti og fara ekkert heim fyrr en um morguninn. Skólinn byrjar á þriðjudaginn sem legst alveg ágætislega í mig til að segja satt. Ég fór að ná í stundatöflunna mina rétt áðan og er hún alveg hið fínasta, fyrir utan einn tíma málið er bara að mér lýst svo ílla á kennarann ég hef bara heyrt vonda hluti um kennsluaðferðir þess kennara. Sumarið ert búið að vera svo fljótt að líða að ég er varla að trúa því að það er bara búið. Sumarið hjá mér fór í það að vinna og já því miður læra. Party, tónleikar og góðir vinir hafa haldið mér vakandi þó í gegnum sumarins. Ég er líka búin að sjá margar góðar bíómyndir yfir sumarið þar má nefna Grindhouse sem ein besta mynd sem ég hef séð og mæli ég eindreigið með henni fyrir þá sem hafa góðan smekk á myndum. Það eina sem er niðurdrepandi er það að Auja er að fara til Kanada eftir 3 vikur. En það hafa samtc ekkert verið neinar kveðjuhófstundir starx, hún á eftir að halda upp á afmælið sitt hér. Svo er það sumarbústaðurinn sem er eftir og hann verður bara eftir smá tíma, shit hvað mér er stax byrjuð að hlakka til eða reyndar er mér búið að hlakka til í allt sumar. En já kveðjuhófið bíður bara, enda er ég ekkert tilbúin að kveðja hana strax. Jæja er þetta ekki orðið gott í bili myndir frá menninganótt fyrir neðan.
»
17.07.2007 17:20:55 / gussy
Ég er komin heim eftir vel verðlaunað helgarfrí, Eistnaflug var
síðustu helgi og þarf varla að taka það fram að það var geggjað
gaman. Ég lagði af stað á fimmudaginn með þeim Önnu, Kjarra, Madda
og Deigi, við byrjuðum að fara í ríkið (helluuu uðvitað) og svo
fórum við Bónus við höfðum svo miklar áhyggur af því að hafa ekki
keypt nóg af áfengi, svo við stoppuðum við í þreimur ríkjum bara
svona til að vera viss um að vera með nóg að birgðum. Allavegana
við gistum fimmtudagsnóttina í sumarbústaðnum hjá Madda,
sumarbústaðurinn var æðislegur og umhverfið í kring váááááá þetta
voru bara dýrðindi allt saman. Svo lögðum við af stað á
Neskaupsstað með Queen í botn þegar
við komum á áfangastaðinn vorum við öll blekfull fyrir
utan Dag, he he he Dagur var orðin frekar pirraður á
þessum endalausum pissustoppum sem við tókum Öll
feimni var farin af okkur eftir að hafa hagið í marga tíma saman í
bíl, áfengið hjálðpaði lika eitthvað. Við sungum og slömmuðum
og vorum í besta fýling. Svo þegar við komum á tjaldsvæðið
beið eftir okkur smá rigning, en fokkk thatttt flestir voru
blindfullir sérstaklega Tóti sem var með Jack Daniels með sér
í hönd. Við tókum með okkur áfengi og myndavél og lögðum af
stað niður í Eigilsbúð, þar var allt troðið við fengum pizzur frá
pizza 67 váá pizza 67 átti eftir að vera góður vinur minn þessa
ferð. Ég sá enga tónleika fyrsta kvöldið kenni ég ölvun um
það. Í staðin var ég bara að spjalla við fólkið og hanga á barnum.
fyndið að hafa eytt svona miklum pening á barnum þegar ég
átti heilan helling af áfengi í tjaldinu mínu, en fokkk
thatttt any how ég fór frekar smemma upp á tjaldsvæiðið fyrsta
kvöldið, mér tókst samt þann merkilega hlut að villast á leiðinni
sem var spes, löggann kom og útskýrði ég að ég vissi ekkert hvar ég
væri og hvert leið minni væri haldið. Löggan (sem var örugglega 17)
horði á mig með skrýtum augum og spurði, jáááá ertu kannski frá
Reykjavik  yesss sagði ég stolt hann sagði mér að slaka é
í drykkjunni og bauð mér far upp á tjaldsvæðið, sem ég afþakkaði en
ég tók samt vel í leiðbeinigarnar sem hann gaf mér. Loksins þegar
ég komst upp á tjaldsvæðið lá ég andvaka vegna kulda, shiturinn
hvað það var kalt en ég náði svo að sofna svo rann
laugardagurinn í garð þá var ég hress enginn þynnka sem kom
mér á óvart. við nokkur kiktum til Eigilstaðar að fá okkur mat og
svo þurftum við að gera nokkur erindi, eftir það var bara starx
byrjað að drekka. Ég fekk þau gleiðitíðindi að Torfi væri á
leiðinni (veiiiiiiii) aftur (veiiiiiiiiii) Hann kom með yess
uðvitað kom hann með Jack daniels  þar mengaði hann
alla drykki með Jackinu. En já að tónleikunum ég sá Myru og uðvitað
Severd Crotch þetta var svo gott og mikil snilld að sjá aðdáindur
frá Neskaupsstað að slamma við Reykvikinga að spila. Það eina sem
var leiðinlegt við ferðina var að Anna meiddi sig á báðum fótum,
það var frekar ömurlegt en hún er hörku tól þessi skvísa, og datt
henni ekki hug að hanga á tjaldvæðinu og gera ekki neitt, svo við
héldum bara á henni útum allt og drakk hún bara til að gleyma
sársaukanum. Þetta var snilld allt saman, þakka fyrir mig.
Fólk að hoppa út í
sjóinn
Trapólín
Skrítnir Drykkjuleikir
Grilla
Slamma
Pizza 67
Tónleikar
Fólk að bulla í
myndavélar
Gunni að drekka
brezzer
Allir á trúnó
Fók að dissa Reykjavik (sem við
launuðum í sömu mynt)
Tóti í rifnum buxum
Allir að fara í sund
Eistnaflugsmyndinn frá því í
fyrra
Ingó að drekka úr
bearbonginu
Fólk að æla
litlir hnakkar að rústa sínum
eigin bæ
Hvar er Subway fyrir utan í
Reykjavik
Tóti að drekka kaffi
Egill í Changer og Ingó að loka
hátiðinn með stæl
»
04.07.2007 13:14:53 / gussy
yessorrí útborgunardagurinn kom og fór, og núna er allt eins og
það var áður. Torfi og Gunni fóru á Hróaskeldu í gær, ég ég Auja
keyrðum þá á flugvöllinn. Ég og Auja skyldum þá eftir á vellinum og
ákvöddum að eiga einn dag í keflavikurbæ, fórum á subway svo að
eins að versla. Á meðan við vorum bara að chilla saman voru
strákarnir að biða eftir að fara út. Torfi fór með fluginu klukkan
13.00 en Gunni ekki fyrr en 17.00. planið var að Torfi mundi bíða
eftir Gunna í kaupmannhöfn , og það er eimitt það sem Torfi gerði.
Torfi kom á flugvöllin og hafði ekkert að gera svo hann ákvaðað að
byrja að drekka, Torfi beið eftir Gunna á flugvellinum í
Kaupmannhöfn, eins og já flestir Íslendingar gera fór Torfi bara að
drekka á meðan hann beið eftir Gunna á flugvöllinum. Torfi var
ekkert búin að borða og var eftir svona þriggja stunda bjórdrykkju
varð Torfi á rasskatinu. Til að gera langa sögu stutta eru
strákarnir búnir að týna hvort öðrum, og sími hans Gunna er
baterílaus. Torfi var rændur af einhverjum helvítis dópista fáitum
sem tóku allt af honum svo Torfi er vegabréfa laus og penigalaus og
miða laus. Torfi náði samt að taka einhvern pening til bara af
þessum ógeðum Torfi svaf í hótelherbegi í nótt. Við þekkjum
strákana okkar svo að vitum alveg að þetta reddast, en þetta
reddaðist allavegna ekki í gærkvöldi. Þau voru 3 Gunni, Torfi og
Guðný en þau eru öll búin að týna hvort öðru. Sá eini sem er komin
er Gunni á tjaldsvæðið. Gunni veit ekki málið með Torfa svo Gunni
er einn á Hróaskeldu svæðinu að leita að Torfa. Við vitum að þeir
eiga eftir að hittast í kvöld. ég heyrði í Torfa áðan og hann er að
redda þessu og kaupa nýjan miða og svona Guðný og hann eru að fara
að hittast og taka lest til Gunna. Svo þetta verður ok. Ég og
Auja ætluðum í bíó í gær en þegar við sáum biðröðina vorum við ekki
alveg að nenna því, í staðin fórum við bara á Fridays þar sem hann
var við hliðina á okkur á meðan við biðum í þessarri helvítis röð.
Hún fekk sér pasta ég beikon hamborgara sem var mjög gott, eftir
það leigðum við Dreamgirls, sú mynd var alveg ágætt en það var samt
sungið allan tíman í myndinni. Það kom lag í 6mín eða eitthvað og
svo var talað í 30sek og áður en því samtali lauk fór einhver að
syngja. Þannig ef þið fílið ekki svona stíl eins og er sýndur í
myndinni og þið fýlið allas ekki söngleikjamyndir, mæli ég ekki með
henni. Cannibal Corpse tónleikarnir voru um helgina og voru þeir
geðveikir shittt Mínus menn og Changer stóðu sig lika vel. Það var
mjög góð stemnig á tónleikunum. Ég og Torfi sofnuðum í vinnubílnum
hans Torfa það var frekar óþægilegt og einnig kalt, en við vorum
svo full að okkur var einginlega alveg sama. Daginn eftir vaknaði
ég með geðveikan stirðleika í hálsinum og þynnku dauðans, en þá var
tími fyrir mig að fara að vinna shittt það var erfitt. það er
myndir af Cannibal Corpse fyir neðan. Mér langaði lika að biðja
mina ákæru vini að gefa kannski jákvæða orku til Torfa og Gunna
úti.
»
25.06.2007 12:48:40 / gussy
Pirringur maður :^ því þarf allt að vera svona erfitt
- Ég man þegar maður hélt maður myndi ekki verða fullorðinn.
- Ég man eftir því þegar Pabbi var eini karlinn sem maður gat
treyst.
- Ég man þegar maður hafði engar áhyggur af útliti.
- Ég man eftir því að hafa engar peninga áhyggur.
- Ég man eftir því þegar mér langaði að vera eins og mamma.
- Ég man eftir því að eiga 500 kall og finnast mann vera
ríkur.
- Ég man eftir því að maður þorði ekki að skrópa.
- Ég man eftir að komast aldrei upp með neitt.
- Ég man eftir að eiga leyndamál.
- Ég man þegar einginn vildi verða móðir
- Ég man þegar maður vissi ekki hvað megrun var.
- Ég man þegar maður gat fyrirgefið.
- Ég man þegar maður trúði öllu.
- Ég man þegar maður ráðlagði sig á alla aðra.
- Ég man þegar maður var verndaður.
- Ég man þegar strákar gátu ekki komið á milli vinkona.
- Ég man þegar maður trúði að allt fólk væri gott.
- Ég man þegar maður hélt að mamma og pabbi vissu allt.
Allt er svo breytt og skrítið, fólk sem ég þekkti einu sinni er
núna bara minningar. Hvernig gerðist það og hvenar ? Hef í raun og
veru enga hugmynd. Tíminn líður svo hratt að maður vaknar einn
daginn og spyr sig hvernig komst ég hingað ? Að taka einn dag í
einu er svo erfitt fyrir mig. Óþolinmæði er það sem ég lifi með. Ég
er alltaf svo stessuð og pirruð. Ég hef aldrei lokað á neinn í mínu
lífi en kannski er það eina leiðin til að halda áfram. Ég verð að
hugsa um sjálfa mig og hvað er gott fyrir mig. Ég er búin að
kynnast fullt af fólki sem er æðislegt og eru alvöru vinir sem ég
vil aldrei missa. En að allt öðru máli hvað er eiginlega málið með
allar þessar stelpur að eignast börn !!! Er þetta þeirra markmið
virkilgea að vera mamma ? Það er ekki áhugamál að eignast börn, ég
fatta ekki hvernig maður er tilbúin í að fórna lífinu sínu sem
maður er búin að lifa í þó nokkurn tíma til þess að egja barn.
Þetta er eins og einhver tískubylja að vera ung móðir. Ísland er
sérstaklega barnavæn þjóð, það er fullt af einstæðum mömmum með mér
í skóla. Þú færð sérþjónustu ef þú átt barn í fá, þú ræður hvenar
þú mætir í tíma færð aldrei seint eða skróp, þótt barnið þitt var
ekki einu sinni lasið. Þú getur fengið félasglega íbúð á undan
öllum. Svo færð þú styrk frá rikinu. Veit eki alveg hvar ég ætla að
fara með þessa umræðu en þetta er bara mín skoðun. Persónlega þarf
ég ekki að eiga barn til fullgilda líf mitt. Fólk á að njóta
lífsinns og lifa því til fulls eða jafnvel gera bara ekki neitt. ég
er alltaf að rekast á kunningja eða sjá vinkonur mínar sem eru
óléttar. Sumar eru yngri en ég og eiga engan penig og eru samt búin
að vera að reyna að eignast barn í 2 ár eða eitthvað. Hvað er málið
með það pufff þau vilja örugglega bara vera með flotta síðu á
barnalamdi eða eitthvað álíka.
»
12.06.2007 15:52:21 / gussy
Vá erum við að tala um gott veður eða hvað ! Það var ekkert að
gera í vinnunni í dag, ég vann stuttan vinnudag það voru allir í
svo góðu skapi ég held það sé nú bara út af veðrinu (: það var
frekar skritið samt að hanga inni þegar það er svona mikil sól úti
sérstaklega af því það var ekkert að gera verð ég að viðurkenna að
ég tók mér frekar lengri pásu en vanalega labbaði yfir í Hagkaup
skoðaði ilmvötn og keypti mér ís og svona. Ég hitti lika Sólrúnu
hún var úti að labba með Þórey Eddu, og ég stoppaði til að
tala við hana. Þegar ég ákvað loksins að fara aftur í
vinnunna, tók eingin eftir því að ég var farin og var mér sagt að
ég mætti alveg vera lengur í pásu, sem ég gerði reyndar ekki en
vegna þess að það var ekkert að gera fór ég hálftíma fyrr heim.
Þessi vika er búin að vera svo frábær sérstaklega helgin ég var að
vinna föstudag og laugardag en var í fríi á sunnudaginn. Ég og
Torfi áttum eins árs afmæli á sunnudaginn og héldum því við upp á
það. Við áttum frábært dag og kvöld saman. Við byrjuðum að fara í
baðstofuna í Laugum sem var alveg frábært og eimitt það sem við
þurftum. Torfa fannst þetta svo þægilegt og róandi að hann sofnaði
eftir það tókum við okkur til fyrir kvöldið Torfi beið eftir mig
segir hann í klukkutíma fyrir utan stelpuklefan ég trúi því nú ekki
það var frekar hálftími eða 40 mínutur í mesta lagi. Alla vegana
við fórum í bæinn og fórum á Ítalíu þar sem við áttum pantað borð.
Maturinn sem við pöntuðum var geðvikt góður við pöntuð bæði pasta
en Torfi fekk sér kjötbollur með ummmm gott. Síðan löbbuðum við
laugarveginn saman og kiktum í nokkrar búðir sem voru opnaðar til
klukkan 10. Þetta var alveg yndislegt kvöld. Þegar ég hugsa ár til
baka er hálf ótrulegt að ég og Torfi byrjuðum saman eða þá að við
erum búin að vera svona lengi saman. Það hefur gerst svo mikið á
einu ári. Ég vona innilega að samband okkar á eftir að styrkjast
meir og meir en fjarlögumst ekki hvort annað.

Allavegana aftur að helginni ég Torfi fórum til Önnu þar sem hún
var ein heima, það var alveg frábært að byrja að drekka þar ég og
Anna höfðum lika svo mikið að tala um. Svo fórum við niður í bæ öll
saman í party á Njálsgötu þar sem bróðir hans Ingó var að flytja
inn í íbúð og var innflutnigs party, reyndar var bróðir hans Ingó
farin þegar við komum. Það var alveg troðið fram úr dyrum þegar við
mættum og var Alexandra og fleiri búin að drekka síðan um klukkan 9
um kvöldið. Við fundum samt eitt tómt herbergi niðri sem engin var
í og vorum við mikið að hanga þar þangað til við vorum rekin út.
Eftir það var leiðin haldin bara eitthvað, það var svo ótrúlega
bjart úti að við vorum held ég ekkert að fatta að það var nótt. Við
löbuðum bara eitthvað í góðum vina hóp eg meina við vorum hvor sem
er niðri í bæ svo það var ekkert vesen að öllum var hent út, við
tókum bara fagnaðin á næsta götuhorn.
*Það eru komnar
myndir frá helginni*
»
29.05.2007 23:10:40 / gussy
Það er búið að vera frekar þreytandi tímabil hjá mér núna, ég er
í starfsnámi og fer svo beint að vinna í vinnunni minni eftir
daginn þar sem ég er í starfsnámi. Ég frekar alltaf þryrr og
uppgefin. Starfsnámið gengur bara mjög vel og er deildarstjórinn
mjög fín. Það var samt pínu vesen til að birja með í starfsnáminu
ég var sett upp á vitlausa deild og var að vinna þar í 3 daga, svo
hringdi umsjónarkennarinn og deidin sem ég átti að vera á alveg
hreint brjálaðar yfir að ég skyldi ekki hafa neitt mætt í
starfsnámið. Mér brá ekkert smá og sagði að ég hafði alveg mætt, og
þá komst í ljós að ég var sett á vitlausa deild og engin fattaði
neitt þar á meðal ég.
Það er annas voða lítið í fréttum ég er bara búin að vera fullu
að mæta í útskriftar veislur. ég var ekki að vinna síðustu
helgi sem kom mér mjög á óvart þar sem ég var skráð á allar helgar
á síðasta vaktaplani. Ég var ekkert smá ánægð því Stella var að
útskrifast og hafði ég þá alveg nógan tíma að hanga með henni.
Planið var að taka eitthvað hörkudjamm og koma ekki heim fyrr en
daginn eftir. Við stelpurnar vorum búnar að plana þetta ekkert smá
vel og var mjög mikil spenningur þar sem það var svo langt síðan
við hittumst og fórum á djammið saman. Alla vegana ég fór til Torfa
og hann átti að keyra mig niður í bæ, ég byrjaði að drekka gin og
tónic sem fer ekkert sérstaklega vel í mig, en þar sem ég átti
ekkert annað var það látið duga. Ég var búín með svona 2 glös þegar
mér leið alltí einu alveg hræðilega ílla. Ég var búin að vera lasin
eitthvað síðustu viku en ég hélt að ég mundi alveg getað farið í
bæinn. Alla vegana ég stein sofnaði og beilaði á öllum. Torfi fór
eitthvað út en ég rotaðist bara heima hjá honum og var bara ekki að
meika neitt. Ég tek eitthvað flipp með stelpunum næst kannski þegar
það er ekki svona mikið stess og mikið að gera. Þegar starfsnámið
er búið legg ég til að við gerum ekkthvað skemmtilegt saman.
myndir frá útskriftaveislum
Stella útskrifaðist frá Félagsfræði braut með aðalfag sem
hagfræði úr MS.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
Auður útskrifaðist úr Fá, hún var
á málabraut
Jórunn útskrifaðist úr Borgó hún
var á félagsliðabraut. Hún var með hæðstu einkunnina (: til
hamingju með það.
Bergþóra útskrifaðist frá Verzló
hún var á félagsfræði braut.
.
.
.
.
.
ahhhh en sætt
Það eru fleiri myndir frá
útskriftarveilsu Jórunnar komnar inn fyrir neðan, hjá hinum
myndunum
»
15.05.2007 16:48:34 / gussy
Chill dagur i dag á að vera. Eftir að ég klárði prófin í gær fór
ég stax í klippingu og fekk mér braðaref, ég meina mér fannst ég
bara alveg egja það skilið. Er búin að Leiga Sex and the city og
Babel og ætla ekkert að gera í kvöld . Kláraði mitt síðasta próf
í gær og byrja í starfsnáminu á morgun á Eir. Mér kvíður pínu fyrir
en ég vil bara byrja sem first og ljúka þessu af. Og kvarta um það
seinna þegar þetta er allt búið. Torfi er búin að flytja í
Gravarholtið og kaupa sér nýtt rúm. Núna búum við svo nálagt hvort
öðru að við þurfum ekkert að spá í tíma eða bensínkostnað eða
eitthvað annað leiðinda efni.Fjölskyldan flutti í raðhús, íbúðin er
mjög flott og er allt nýtt í íbúðinni. Það var boðið til Eurovision
prty á laugardaginn í nýju íbúðinni og var keypt flatskjá sjónvarp.
Það leit út fyrir að sjónvarpið mundi ekki ná að koma fyrir
keppnina. En svo kom það á síðustu stundu. Ég horfði á fyrir
keppnina á fimmtudaginn heima hjá Tótu. Það var geðveikt stuð hjá
okkur við sukkuðum í pizzu með bönunum og pepparóni, maður þarf nú
að prófa áður en maður dissar. Og viti menn pizzan var bara mjög
góð. Mér fannst ömurlegt að við komust ekki áfram og sum
lögin ohhhhhh díses sum lögin er ekki verið að grínast í manni. Mér
fannst lagið okkar ekkert geðveikt gott en miðað við sum lögin skil
ég bara ekkert í afhverju þau komust áfram. Núna er það bara að
norður löndin standi saman í næstu keppni.
Jamm diskurinn með Severed Croutch er komin út og
voru´útgáfutónleikarnir geðveikir. Þið getið nálgast diskinn í
gegnum meðlimi hljómsveitarinnar. Eða Auju og Önnu they will hook
you up. Svo verða diskar seldir í diskabúð Valda. Diskurinn er
geðveikur og kostar litllar 1000 krónur.
.
En það helsta í fréttum er að
Sunneva er búin að egja. hún eignaðist strák, hann var 14
merkur hún eignaðist hann 2 mai. Fæðingin gekk mjög vel. Hún var
um16 tíma að fæða og fekk Sunneva 2 mænustungur. Sonurinn er með
mikið dökkt hár og er bara mjög myndalegur.
Sunneva orðin mamma
innilega til hamingju með fallega strákin elsku vinkona mín.
************************************************
Annað í fréttum það koma myndir frá afmæli Elínar
hér fyrir neðan sem var haldið á kaffi vín.
Afmæliðbarnið
.
»
17.04.2007 22:21:59 / gussy
Páskafríið tekið
saman
- Átti afmæli
- Er orðin fastagestur á Subway
- Vinnan ekki eins slæm og áður hefur verið
- Fór á eitt versta og leiðilegasta fyllrí sdem ég hef farið á,
ætla ekkert að fara út í smáatriðin.
- Átti skemmtilegt kvöld í bænum
- Lærði ekkert í fríunu, gerði eina tilraun með Auju sem var fín
kláraði eitt verkefni, annars ekkert lært.
- Sunneva er alveg að fara að eiga, ekki lengur eftir vikur
heldur eftir nokkra daga.
- Amy Winehouse er föst í geislaspilarnum mínu.
- Þasð er mjög erfitt að byrja aftur í skólanum eftir fríið, hef
líka verið veik og slappleiki er það srm einkennir mig núna.
- Oddný er í bænum ég og Auja hittum hana og Tótu og Kristínu í
smá runt.
- Fermingveisla sem varð bara miklu skemmtilegri en ég bjóst
við.
- Cannibal Corpse miðinn verður keyptur í vikunni.
- Ég mun byrja í starfsnáminu 16 mai. Búin að tala við
yfirmanninn minn og tók hún bara vel í það.
- Heiðrún, Anna, Auja og ég fórum í bíó á Perfect Stranger sem
mér fannst bara mjög góð mynd, myndin magnaðist mest í endann og
vissi maður ekkert hvað vara ð gerast fyrr en myndin var búin.
- Kaldur bjór í ískápnum bíður eftir mér á kvöldin, svona smá
afléttari

- Prófin nálgast óðum og er ég ekkert smá stessuð ég á eftir að
ljúka nokkrum verkefnum, þarf að nýta tíman minn mjög vel núna og
vera skipulögð.
- Sumarið er alveg að koma ég er ekki alveg að trúa því. Árið er
ekkert smá fjótt að líða, ég hef eginn sumarplön þessa stundina,
útlandferðir verða planaðar seinna ef þær verða.
***********************************************
Ég er búin að bæta nokkrum myndum í down town
partin, tók ekkert margar myndir en samt enhverjar. Páskafríð var í
heildina ágætt, ég hefði mátt nýta tíman meira í að læra en þrátt
fyrir það alltaf gott að vera í fríi.
Ég vildi enda þetta blogg á mynd sem pabbi tók
þegar hann fór í sína daglegu gönuferð með prinsa. Þetta er ein
flottasta mynd af fálka sem ég hef séð.
»
03.04.2007 19:17:59 / gussy
Ég hélt upp á afmælið mitt laugardaginn 31. mars en ég á afmæli
annan apríl. Ég var 21 í tilefnni þess bauð ég vinum heim til mín í
afmælisveislu. Ég vona að allir hafa skemmt sér vel í afmælinu
mínu.
Á sjálfu afmælinu mínu kom Auja til mín og vorum við saman að halda
upp á það. Svo um kvöldið kom Torfi og pöntuðum við pízzu og fórum
í bíó. Ég vil þakka sérsaklega Auju að halda upp á afmælið mitt með
mér og vera með mér heilan dag og allt kvöldið síðasta mánudag, þú
ert æðisleg vinkona og var frábært að vera með þér á afmælnu
mínu.
Ég vil þakka öllum þeim sem komu í
afmælið mitt og þeirri væntinþyggju sem mér var sýnd.
Mynir eru konar
frá kvöldinu.
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|